Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Útskrift á Hólmavík

Föstudaginn 1. maí voru 9 nemendur sem stundað höfðu nám samkvæmt námskránni “Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum” útskrifaðir á Hólmavík. Námskráin er ein af þeim sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gefur út og er ný námskrá sem hentar þeim sem áður hafa stundað nám í grunnmenntaskólanum. Útskriftin fór fram á Café Riis á Hólmavík og mætti Smára Haraldsson forstöðumaður á svæðið og útskrifaði fólkið ásamt Kristínu S. Einarsdóttur verkefnastjóra á Hólmavík. Þá voru kennarar sem kennt hafa námskrána viðstaddir. Eftir að hafa snætt dýrindis málsverð á Café Riis fóru menn ýmist til síns heima eða á leiksýningu Leikfélags Hólmavíkur, “Viltu finna milljón?”

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is