Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vatnsfjörður í stað mannabeina - breytt dagskrá á fyrirlestri um fornleifafræði

Í vetur ætlar Fræðslumiðstöðin í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og hugsanlega fleiri aðila, að gangast fyrir röð fyrirlestra um menningararfinn og verða þeir sendir út í gegnum fjarfundabúnað.

Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 21. október n.k. kl. 17:00 í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði. 

Upphaflega ætlaði Hildur Gestsdóttir fornleifafræðingur að ríða á vaðið og fjalla um mannabein og mannamein, en af óviðráðanlegum orsökum hefur þarf að fresta fyrirlestri hennar. Þess í stað mun Guðrún Alda Gísladóttir fornleifafræðingur fjalla um Vatnsfjörð í Ísafjarðardjúpi. Gert er ráð fyrir að fyrirlesturinn taki um 45-60 mínútur og kostar 1.000 kr. 

Tengt efni
Fyrirlestrar um menningararfinn
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og hugsanlega fleiri aðila, hyggst taka upp þá nýbreytni í vetur að gangast fyrir röð fyrirlestra undir heitinu Menningararfurinn.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is