|
||||
|
|
Sunnudaginn 11. október var námskeið í leðurtöskugerð frá Leður & List. Námskeiðið sem átti að vera á laugardeginum hafði verið frestað vegna veðurs og kom leiðbeinandinn keyrandi frá Selfossi.
Mættar voru tíu konur til að nema þessa skemmtilegu iðn. Mikið líf og fjör var á námskeiðinu og áhuginn greinilega mikill. Afraksturinn var að hver kona fór með sína tösku heim fullgerða.