Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vel heppnaður Vestfjarðahringur

Í síðustu viku gerði starfsfólk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða víðreist um Vestfirði. Með í för voru starfsmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Starfsendurhæfingar Vestfjarða. Kynningar voru haldnar sitt hvert kvöldið á fjórum stöðum á Vestfjörðum: Reykhólum, Sævangi á Ströndum, Flateyri og Patreksfirði. Það ríkti góð stemming á þessum kynningarkvöldum þar sem hver stofnun kynnti sýna starfsemi. Auk þess voru fengnar vanar konur á hverjum stað til að halda örnámskeið í að sníða og sauma sláturkeppi. Auk þess að halda þessar kynningar var farið í heimsóknir á ýmsa vinnustaði á viðkomustöðum og heilsað upp á starfsfólk þar.
image
image
image
image
image
image
image
image

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is