Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vélgæsla að hefjast

Á hverju ári hefur Fræðslumiðstöðin samvinnu við Guðmund Einarsson kennara um að bjóða upp á vélgæslunámskeið. Þessi námskeið njóta alltaf vinsælda enda veita þau rétt til að vera vélavörður á skipum 12 metrar og styttri að skráningarlengd með vélarafl 750 kW eða minna (Skírteini: Smáskipa vélavörður (SSV<)).

Mánudaginn 18. apríl hefst næsta námskeið og verður það kennt í verkmenntahúsi Menntaskólans á Ísafirði. Fyrsti tíminn er kl. 19:00 og þá verður endanlegt kennslufyrirkomulag ákveðið í samráði við þátttakendur. Allar nánari upplýsingar má fá hjá Guðmundi í síma 896 3697.

Þess má geta að fyrirhugað er að vera með vélgæslunámskeið á Patreksfirði seinna í vor og í Saurbæ í Dölum í júní.

Tengt efni
Vélgæsla - Ísafjörður
Námskeiðið í samstarfi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Guðmundar Einarssonar kennara. Námskeiðið veitir rétt til að vera vélavörður á skipum 12 metrar og styttri að skráningarlengd með vélarafl 750 kW eða minna (Skírteini: Smáskipa vélavörður (SSV)).
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is