Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vellukkuð þjónustunámskeið

Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur undanfana daga haldið námskeiði fyrir fólk í ferðaþjónustu, sem kallast Þjónustugæði og kvartanir. Námskeiðið var haldið í samstarfi og með styrk frá Ferðamálasamtökum Vestfjarða og Starfsmenntaráði.

Námskeiðið var haldið á þremur stöðum. Þriðjudaginn 19. júní var það í Bjarkalundi, miðvikudaginn 20. júní í Flókalundi og fimmtudaginn 21. júní á Ísafirði.

Á námskeiðinu var sagt frá því hvað þjónusta er og mikilvægi þjónustu í samkeppni. Fjallað var um hvernig hægt sé að gera viðskiptavini mjög ánægða með því að fara fram úr væntingum.

Þá var fjallað um mikilvægi þess að læra af kvörtunum viðskiptavina og ábendingum.

Leiðbeinandi á námskeiðinu var Margrét Reynisdóttir, framkvæmdastjóri KAXMA-ráðgjöf ehf.

Meðfylgjandi mynd var tekin á námskeiðinu á Ísafirði þegar forstöðumaður fékk nemendur og leiðbeinanda til að líta sem snöggvast upp fyrir myndatöku.

Námskeiðið var haldið í Ráðgjafar og nuddsetrinu hjá Stebba Dan.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is