Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vetrarstarfið hafið

Vetrarstarf Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er að komast á skrið. Nú í byrjun september hófu um 20 manns nám eftir námsskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (Fa) sem kallast Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum. Um er að ræða 300 kennslustunda nám sem skiptist í ensku, dönsku, íslensku, stærðfræði og námstækni.

Þetta nám er ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 23 ára, eru starfandi á vinnumarkaði og hafa hafið nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi. Námsefnið er sambærilegt við grunnáfanga í framhaldsskóla og má meta námsskrána á móti allt að 24 einingum.  Eins og gildir um aðrar námsskrár frá Fa er lögð áhersla á að kennsluaðferðir og framsetning efnis taki mið af þörfum fullorðins fólks sem er að reyna sig í námi, jafnvel eftir langt hlé.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is