Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Viðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa.

Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi, verður til viðtals á Ísafirði frá og með þriðjudeginum 19. júní. Ráðgjöfin er þáttur af átaksverkefni á landsvísu um náms- og starfsráðgjöf, sem unnin er í samvinnu við Fræðslumiðstöð atvinnulifsins.

Náms- og starfsráðgjafinn getur hjálpað þér með upplýsingar um nám og störf, aðstoðað við að kanna áhugasvið og hæfni, veitt upplýsingar um mögulegar námsleiðir og styrki, aðstoð við að setja sér markmið og útbúa námsáætlun eða veitt ráðgjöf um persónuleg málefni.

Notaðu tækifærið og fáðu nánari upplýsingar eða pantaðu viðtal hjá okkur á Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025.
Viðtalið tekur um það bil eina klukkustund og fólk þarf ekkert að borga fyrir það.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is