Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Viðhald og endursmíði gamalla trébáta

Námskeiðið um viðhald og endursmíði gamalla trébáta verður haldið á Reykhólum dagana 27. og 28. maí nk.

Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig íslenskir bátar voru viðaðir og gerð íslenskra báta. Hver eru heiti borða og áhalda sem voru um borð í Vestfirskum bátum, hvaða verkfæri voru (og eru) notuð við smíði og endursmíði bátanna. Talað um báta frá söguöld til Stanleys og farið yfir seglasaum og sjóklæðagerð.

Að loknum erindum verður frumsýndur leiðarvísir/mynd um hvernig smíðaður er breiðfirskur bátur eftir Ásdís Thoroddsen

Tími: 18.00-20.00 fimmtudaginn 27. maí og 9.00-15.30 föstudaginn 28. maí 2010

Kennarar: Ásdís Thoroddsen, Ágúst Ó. Georgsson, Eggert Björnsson. Hafliði Aðalsteinsson, Hjalti Hafþórsson, Jón Sigurpálsson og Þröstur Jóhannesson.

Staður: Hlunnindasafnið á Reykhólum
Fjöldi kennslustunda: 12
Verð: 12.500

Tengt efni
Viðhald og endursmíði gamalla trébáta
Hvernig voru Íslenskir bátar viðaðir. fyrirlesari Ágúst Georgsson frá Þjóðminjasafninu? Gerð Íslenskra báta – fyrirlesari Jón Sigurpálsson. Hver eru heiti borða og áhalda sem voru um borð í Vestfirskum bátum, hvaða verkfæri voru (og eru) notuð við smíði og endursmíði bátanna Þröstur Jóhannesson / Hafliði Aðalsteinsson Bátar frá söguöld til Stanleys. Kumlið á Litlu Núpum / Vatnsdalskuml Fyrirlesari Hjalti Hafþórsson. Seglasaumur fyrirlesari Eggert Björnsson. Frumsýndur leiðarvísir/mynd um hvernig smíðaður er Breiðfirskur bátur. Ásdís Thoroddsen
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is