Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vinnufundur á Hólmavík

Frá Vinnufundinum á Hólmavík
Starfsfólk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða kom saman í Þekkingarsetrinu á Hólmavík dagana 8. og 9. júní s.l. til vinnufundar um málefni miðstöðvarinnar.
Á fundinum var farið yfir starfsemina síðast liðinn vetur og lögð drög að starfinu næsta vetur. Þá var einnig rætt um verklagsreglur, gæðamál og námsmat.
Á vorönn 2010 er fjöldi nemendastunda kominn yfir 21 þúsund, en var rúmlega 31 þúsund allt síðast liðið ár. Starfsemi miðstöðvarinnar hefur þannig aukist töluvert á milli áranna. Hlutirnir gerast þó ekki af sjálfu sér. Sífellt þarf að huga að nýjum tækifærum og að reyna að gera betur í dag en í gær.
Fræðslumiðstöðin er með starfsfólk og starfsstöðvar á þremur stöðum; á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is