Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Vorönninni lýkur með tónlistarnámskeiðum

Vorönn 2010 er nú að verða lokið hjá Fræðslumiðstöðinni. Aðeins tvö námskeið er enn í gangi, en það eru tónlistarnámskeið, sem haldin er í samvinnu við Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum og Fjölmennt - fullorðinsfræðslu fatlaðra. Kennt er einu sinni á viku á hvoru námskeiðinu, á mánudögum og miðvikudögum. Kennt verður í næstu viku, en 1. júlí lokar Fræðslumiðstöðin vegna sumarleyfa.

Guðrún Jónsdóttir söngkona er kennari á námskeiðunum. Hún hefur gítarinn með sér og leikur undir hann í söngnum. Þar er hún reyndar dyggilega studd af Hjalta Þórarinssyni, sem leikur einnig undir sönginn á gítar.
Sönggleðin ræður því nú ríkjum hjá Fræðslumiðstöðinni og útilegulögin hljóma.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónlistarnámskeiðunum.

F.v. Gunna, María og Heiða

Guðrún, Elva og Halldóra

Halldóra, Viktoría, Björk, Kristín og Ásta

F.v. Ásta, Gunna, Guðbjörg, Heiða og Stína

Guðrún og Hjalti

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is