Fræðslumiðstöð Vestfjarða - miðstöð símenntunar á Vestfjörðum
Fræðslumiðstöð Vestfjarða var formlega stofnuð á degi símenntunar 28. ágúst 1999. Markmið með stofnun hennar er að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi bæði í formi styttri almennra námskeiða, endurmenntunarnámskeiða og starfstengdra námskeiða, en þó ekki hvað síst að auka möguleika á námi á háskólastigi m.a. með því að nýta fjarfundartæknina sem þá var að ryðja sér til rúms.