Fagnámskeið í umönnun fatlaðra
Haustönn 2022
Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda.
Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu,lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.
Námið er ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði, eldri en 20 ára sem hefur stutta formlega skólagöngu að baki.
Meta má námið á móti allt að 16 einingum í framhaldsskóla, ath það er þó alltaf mat viðkomandi skóla.
Tími: Námstíminn er tvær annir. Kennt 2-3 sinnum í viku tvo klukkutíma í senn ca þrjá mánuði á hvorri önn. Nánari tímasetning auglýst síðar.
Lengd: 164 klukkustundir með leiðbeinenda.
Staður: Fjarkennt.
Verð: 62.000 kr.
Námsmat: 80% mæting og virk þátttaka.
Minnum væntanlega þátttakendur á að kanna með rétt sinn til endurgreiðslu þátttökugjalda hjá fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|