Íslenska - Hólmavík
16. mars 2026
Á námskeiðinu er unnið með þætti sem tengjast daglegu lífi og störfum með það að markmiði að auka skilning og orðaforða. Lögð er áhersla á að nemendur geti gert sig skiljanlega og tekið þátt í einföldum samræðum um dagleg málefni. Allir þættir tungumálsins eru þjálfaðir eins og skilningur, hlustun, tal, lestur og ritun auk þess sem byggt er ofan á grunn málfræðinnar.
Námskeiðið er aðlagað nemendahópnum og er ætlað bæði byrjendum og þeim sem hafa náð einhverjum tökum á málinu. Við kennsluna er tekið mið af námskrá frá menntamálaráðuneytinu Íslenska fyrir útlendinga - grunnnám.
Tími: Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 18:00-20:00. Hefst 16. mars og lýkur 20. apríl.
Kennari: Skúli Gautason.
Lengd: 20 klukkustundir.
Staður: Vilji fiskverkun, kaffistofa.
Verð: 29.500 kr.
Til þess að ljúka námskeiðinu með viðurkenningu þarf að lágmarki 75% mætingu.
Þau sem eru í Verk Vest eða Verkalýðs og sjómannafélaga Bolungarvíkur og starfa hjá ríki eða sveitarfélögum geta sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Fræðslumiðstöðin hvetur aðra þátttakendur til að kanna með endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá sínu félagi.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

