Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Jákvæð sálfræði í lífi og starfi - fjarkennt

13. apríl 2026

Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju. Hún veltir fyrir sér hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi.

Á námskeiðinu er farið í hvað rannsóknir á hamingju einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað er um gagnreyndar leiðir til að auka vellíðan. Farið er í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi.

Kennari: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.
Tími:
 Kennt mánudaginn 13. apríl kl 17-20. 
Staður: Fjarkennt.
Verð: 18.500 kr.

Félagsfólk í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Fræðslumiðstöðin hvetur aðra þátttakendur til að kanna möguleika á styrk til greiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning