Sáning matjurta-, kryddjurta- og sumarblómafræja - fjarkennt
24. mars 2026
Langar þig að rækta þitt eigið grænmeti, krydd og sumarblóm í sumar? Þá gæti þetta hagnýtt og aðgengilegt námskeið í sáningu matjurta-, krydd- og sumarblómafræja verið málið.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnatriði sáningar og uppeldis plantna, meðal annars:
- Hvaða mold hentar best?
- Hvenær er rétti tíminn til að sá?
- Hvernig tryggjum við góða spírun?
- Lýsing, hitastig og umhirða fyrstu vikurnar
- Helstu mistök sem gott er að forðast
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja efla þekkingu sína og fá meiri öryggi í ræktuninni.
Með réttum undirbúningi í mars leggur þú grunninn að blómlegu og gjöfulu sumri.
Kennari á námskeiðinu er Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur, sem hefur víðtæka reynslu af ræktun og fræðslu.
Tími: þriðjudagur 24. mars 2026 kl. 17:00-18:30.
Staður: Fjarkennt.
Verð: 14.900 kr.
Félagsfólk í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Fræðslumiðstöðin hvetur aðra þátttakendur til að kanna möguleika á styrk til greiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

