Sölu- markaðs- og rekstrarnám - nám fyrir frumkvöðla
2. október 2023
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám er sérstaklega hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja styrkja eigin rekstur eða þá sem hafa í hyggju að stofna eigið fyrirtæki. Námið er kennt í samstarfi Fræðlsumiðstöðvar Vestfjarða og SÍMEY og er ætlað einstaklingum sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi.
Fyrirkomulag náms:
Námið hefst 2. október klukkan 17:00 í lýkur 6. maí 2024. Námið er byggt þannig að einn námsþáttur er kenndur í einu. Allir fyrirlestar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið. Námið fer fram í gegnum Microsoft Teams og fá þátttakendur aðgengi að microsoft leyfum á meðan á námi stendur.
Námsmenn hafa aðgengi að kennara á mánudgöum og fimtudögum milli kl. 17:00 og 20:00 í gegnum Teams. Þar fá námsmenn nemendur aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðu hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða og hafa aðgengi ráðgjöfum og verkefnastjórum miðstöðinni. Fyrstu dagana verður námstækni kennd og fyrirkomulagið nánar útskýrt.
Námsþættir í Sölu,- markaðs,- og rekstrarnámi:
- Fullorðni námsmaðurinn
- Tölvu- og upplýsingatækni
- Sölutækni
- Viðskiptatengsl og þjónusta
- Verslunarreikningur
- Almenn markaðsfræði
- Samskipti
- Sjálfstraust, framsögn og framkoma
- Markaðsrannsóknir
- Excel við áætlanagerð
- Markaðssetning á samfélagsmiðlum
- Stafræn markaðsfræði
- Lykiltölur, lausafé og áætlanagerð
- Samningatækni
- Frumkvöðlafræði og fyrirtækjasmiðja
- Stofnun fyrirtækja
- Verkefnastjórnun
- Gerð kynningarefnis og gerð viðskiptaáætlana.
Lengd: Námið er 288 klst en að auki er gert ráð fyrir einhverri heimavinnu þátttakenda. Námið má meta til allt að 22 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins með stuðningi Fræðslusjóðs.
Verð: kr. 113.000 (með fyrirvara um breytingar á verðskrá Fræðslusjóðs). Við hvetjum umsækjendur til að kanna möguleika á styrkjum hjá stéttarfélögum og fræðslusjóðum.
Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|