Vistakstur
Vorönn 2024
Markmið námskeiðsins er að bílstjórinn þekki hugmyndafræði vistaksturs og með hvaða hætti hann getur lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun og hámarkað öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi.
Námskeiðið er hluti af endurmenntun atvinnubílstjóra. Bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni skal hafa lokið 35 kennslustunda endurmenntun á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun. Til þess að ljúka endurmenntuninni þurfa bílstjórar að ljúka þremur kjarnanámskeiðum; Vistakstur - örygig í akstri, Umferðaröryggi og Lög og reglur. Auk þess þarf að klára annað hvort námskeið um farþegaflutninga eða vöruflutninga og eitt val námskeið, til dæmis skyndihjálp.
Þú getur skoðað stöðu þína í endurmenntun hér.
Tími: Vor 2024 - nánari tímasetning auglýst síðar.
Lengd: 7 kennslustundir.
Verð: 18.600 kr. Minnum á að flest stéttarfélög endurgreiða hluta þátttökugjalds.
Til þess að ljúka námskeiðinu með fullnægjandi hætti þarf að sitja alla tíma þess.
Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|