Vöruflutningar
Haustönn 2023
Markmið námskeiðsins er að bílstjóri öðlist þekkingu í að ganga af öryggi frá mismunandi tegundir farms og festingum hans. Bílstjóri þekki reglur um, notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa.
Námskeiðið er hluti af endurmenntun atvinnubílstjóra. Bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni skal hafa lokið 35 kennslustunda endurmenntun á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun. Til þess að ljúka endurmenntuninni þurfa bílstjórar að ljúka þremur kjarnanámskeiðum; Vistakstur - örygig í akstri, Umferðaröryggi og Lög og reglur. Auk þess þarf að klára annað hvort námskeið um farþegaflutninga eða vöruflutninga og eitt val námskeið, til dæmis skyndihjálp.
Þú getur skoðað stöðu þína í endurmenntun hér
Tími: Haust 2023, nánari tímasetning auglýst síðar.
Lengd: 7 kennslustundir.
Verð: 18.600 kr. Minnum á að flest stéttarfélög endurgreiða hluta þátttökugjalds.
Til þess að ljúka námskeiðinu með fullnægjandi hætti þar að sitja alla tíma þess.
Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|