Fræðslumiðstöð Vestfjarða - Fréttir
Eins og undanfarin ár er Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við nokkur stéttarfélög um greiðslu námskeiðsgjalda. Félagsfólk þessara félaga getur því sótt ákveðin námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni sér að kostnaðarlausu.
Samstarfið nær til Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk stéttarfélaga sem eiga aðild að Iðunni.
Námskeiðin eru fjölbreytt og af ýmsum toga. Mörg þeirra eru fjarkennd en einnig er boðið upp á staðnámskeið á Ísafirði. Nánari upplýsingar um þau námskeið sem falla undir þetta fyrirkomulag má finna undir flokknum Stéttarfélög hér á síðu Fræðslumiðstöðvarinnar.
Fræðslumiðstöðin hvetur fólk til að nýta sér þetta góða tækifæri og kynna sér úrval áhugaverðra námskeiða sem eru í boði í haust.
Námskeiðin eru öllum opin og er fólk í öðrum félögum en þeim sem hér eru nefnd hvatt til að kanna hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði hvort það eigi rétt á styrk eða endurgreiðslu vegna námskeiðsgjalds.
Mikilvægt er að taka fram við skráningu í hvaða stéttarfélagi þátttakandi er.
Í júní á þessu ári hélt starfsfólk Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða til Þýskalands þar sem Volkshochschule í Chemnitz var heimsóttur. Við dvöldum þar í nokkra daga í starfsspeglun þar sem við fengum tækifæri til að kynnast starfsemi og uppbyggingu skólans, deila reynslu og sækja okkur nýjar hugmyndir sem geta nýst í starfi okkar hjá Fræðslumiðstöðinni.
Við tókum þátt í ýmsum námskeiðum og kynntum okkur fjölbreytt námsframboð Volkshochschule. Þar eru meðal annars tungumálanámskeið, matreiðslunámskeið og íþrótta- og hreyfitímar. Það var áhugavert að sjá hversu fjölbreytt fræðslustarf getur verið innan fullorðinsfræðslunnar.
Eitt af því sem vakti sérstaka athygli okkar var samstarf skólans við söfn og aðrar stofnanir í samfélaginu. Einnig var áhugavert að kynna sér þær leiðir sem skólinn fer til að stuðla að inngildingu nýrra íbúa og efla menningarmiðlun. Þessi nálgun gaf okkur nýja sýn á hvernig hægt er að tengja saman nám, menningu og samfélag.
Á meðan á dvölinni stóð fengum við einnig tækifæri til að kynnast sögu og menningu Chemnitz og Austur-Þýskalands. Við fræddumst meðal annars um sögu svæðisins frá þeim tíma þegar það tilheyrði fyrrum Austur-Þýskalandi.
Heimsóknin var bæði fræðandi og hugvekjandi. Við fengum tækifæri til að deila hugmyndum og reynslu og kynnast nýjum leiðum í fullorðinsfræðslu. Ferðin var því dýrmæt bæði frá faglegu og menningarlegu sjónarhorni og við komum heim þakklátar og með margar nýjar hugmyndir.
Ferðin var styrkt af Erasmus+.
Sigríður Árnadóttir hefur hafið störf hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, þar sem hún sinnir náms- og starfsráðgjöf ásamt verkefnastjórn. Sigríður er þroskaþjálfi að mennt og hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf og skapandi starfi. Auk þess hefur hún verið virk í starfi Þroskaþjálfafélags Íslands og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Við bjóðum Sigríði hjartanlega velkomna til starfa!
Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður fullorðnu fólki upp á fría náms- og starfsráðgjöf á grundvelli laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Hægt er að bóka viðtal við ráðgjafa með því að senda tölvupóst á sigridur@frmst.is eða frmst@frmst.is
Í maí stóð Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir Erasmus+ kynnis- og námsferð til borgarinnar Murcia á Spáni. Í ferðina fóru níu þátttakendur, 60 ára og eldri, ásamt tveimur starfsmönnum Fræðslumiðstöðvarinnar. Markmið ferðarinnar var að kynna sér hvernig efla má símenntun eldra fólks, með áherslu á tungumál, tæknifærni og félagslega virkni. Ferðin veitti jafnframt dýrmæta reynslu af alþjóðlegu samstarfi og menningarskiptum.
Í Murcia heimsótti hópurinn CEA García Alix, skóla fyrir fullorðinsfræðslu, þar sem þátttakendur kynntu sér starfsemi skólans og tóku þátt í kennslustundum. Þátttakendur sóttu meðal annars tíma í ensku, spænsku og tölvum, þar sem fjallað var um upplýsingatækni og notkun gervigreindar í námi og daglegu lífi. Heimsóknin gaf þátttakendum tækifæri til að afla sér nýrrar þekkingar, skiptast á hugmyndum og kynnast nýrri menningu.
Það var sérlega ánægjulegt að þátttakendur komu víða að af Vestfjörðum, meðal annars frá Ísafirði, Hnífsdal, Suðureyri, Patreksfirði, Bíldudal og Hólmavík. Ferðin skapaði gott tækifæri fyrir fólk af ólíkum svæðum til að kynnast betur, læra saman og deila reynslu.
Ferðin var bæði lærdómsrík og eftirminnileg og var styrkt af Erasmus+.
Fræðslumiðstöð Vestfjarða þakkar öllum þátttakendum fyrir þátttöku í virkilega vel heppnaðri ferð og ánægjulega samveru.
Menntaskólinn á Ísafirði mun bjóða upp á leikskólaliða- og stuðningsfulltrúanám haustið 2026. Námið veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, listsköpun og notkun leikja. Leikskólaliðar starfa við hlið annars fagfólks í leikskólum.
Hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða stendur þátttakendum til boða að fara í raunfærnimat, sem getur stytt leiðina í gegnum námið verulega.
Raunfærnimat felur í sér að metin er sú þekking og færni sem einstaklingar hafa aflað sér utan hefðbundins skólanáms. Þar getur verið um að ræða starfsreynslu, starfsnám, frístundanám, félagsstörf eða reynslu úr daglegu lífi. Þessi færni er metin til eininga á framhaldsskólastigi eða samkvæmt viðmiðum atvinnulífsins, sem getur bæði sparað tíma og aukið hvatningu til að ljúka námi.
Mat á raunfærni er ætlað einstaklingum sem eru 23 ára eða eldri og hafa að minnsta kosti þriggja ára reynslu í viðkomandi grein. Fræðslusjóður greiðir þátttökugjald fyrir þau sem ekki hafa lokið formlegri menntun. Sumir starfsmenntasjóðir styrkja þátttöku í raunfærnimati fyrir þau sem hafa útskrifast úr öðru námi.
Ráðgjafar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veita allar nánari upplýsingar um raunfærnimat - ekki hika við að hafa samband í síma 456 5025 eða með tölvupósti á frmst@frmst.is">frmst@frmst.is
Nánari upplýsingar um námið sjálft er að finna á vef Menntaskólans á Ísafirði misa.is
Í mars héldu starfsmenn og íslenskukennarar frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða áfram Erasmus+ ferð sinni með heimsókn til CEAD Santa Cruz de Mercedes Pinto, sem er fræðslumiðstöð fyrir fullorðna og sérhæfir sig í fjarnámi.
Í heimsókninni fengum við tækifæri til að kynnast því hvernig kennarar á Kanaríeyjum takast á við landfræðilegar áskoranir og hvaða stafrænu verkfæri þeir nýta í kennslu sinni.
Við fengum fróðlega kynningu á spænska menntakerfinu með sérstakri áherslu á fullorðinsfræðslu. Við fengum einnig tækifæri til að taka þátt í vettvangsnámi (job shadowing) í tungumálatímum og fengum innsýn í kennsluaðferðir, búnað og þau verkfæri sem notuð eru. Einnig var okkur kynnt rafrænt námsumhverfi skólans.
Auk faglegs ávinnings fengum við dýpri innsýn í menningu, fjölbreytileika og sögu Kanaríeyja.
Við erum þakklát fyrir þetta tækifæri og færum CEAD okkar bestu þakkir fyrir hlýjar móttökur.
Hefur þú tekið þátt í námskeiðum hjá Fræðslumiðstöð?
Býrðu á Vestfjörðum og ert þú 60 ára eða eldri?
Viltu sækja um að taka þátt í Erasmus+ verkefni í Murcia á Spáni!
Verkefnið fjallar um virka borgaravitund og samfélagslega þátttöku. Þátttakendur munu sækja tungumála- og tölvunámskeið í fullorðinsfræðslumiðstöð í Murcia og fá tækifæri til að læra nýja hluti og kynnast nýju umhverfi.
Staðsetning: CEA Garcia Alix, Murcia, Spánn
Tímabil: 12.–16. maí (með ferðadögum)
Þátttaka og ferðakostnaður er greiddur með styrkjum frá Evrópusambandinu.
Hafðu samband við okkur á ilona@frmst.is fyrir 15. mars ef þú hefur áhuga.
Í byrjun janúar hélt Fræðslumiðstöð Vestfjarða hagnýtt námskeið á Bíldudal fyrir eldra fólk sem vill verða öruggara í notkun snjallsíma.
Á námskeiðinu var farið yfir grunnstillingar síma, aðgengismál og nytsamlegar flýtileiðir. Þátttakendur kynntust gagnlegum öppum, samskiptalausnum og því hvernig senda má og taka á móti myndum. Sérstök áhersla var lögð á netöryggi, svikavarnir og örugga netnotkun. Að auki var boðið upp á kynningu á ChatGPT og gervigreind, með áherslu á einfalda og hagnýta notkun slíkra verkfæra.
Kennari á námskeiðinu var Birna Hannesdóttir. Námskeiðið var haldið í góðu samstarfi við Félag eldri borgara í Vesturbyggð sem tók þátt í kostnaði. Námskeiðið var mjög vel sótt og var það samdóma álit þátttakenda að vel hefði tekist til og mikilvægt að bjóða upp á svona fræðslu fyrir eldra fólk.
Sambærilegt námskeið verður haldið á Ísafirði í febrúar þar sem leiðbeinandi er Ármann Haraldsson. nánari upplýsingar um það má finna hér.
Fyrr á þessu ári fékk Fræðslumiðstöð Vestfjarða aðild að Erasmus+ áætluninni sem gerir starfsfólki, kennurum og nemendum miðstöðvarinnar kleift að sækja námskeið og taka þátt í starfsþróunarferðum erlendis. Nú í október fóru þrír verkefnastjórar frá Fræðslumiðstöðinni í þriggja daga Erasmus+ starfsþjálfun til La Spezia á Ítalíu.
Ferðin var hluti af samstarfsverkefni við CPIA La Spezia, fullorðinsfræðslustofnun sem leggur áherslu á tungumálanám, inngildingu og jöfn tækifæri til menntunar fyrir fólk með fjölbreyttan bakgrunn. Einnig var farið í heimsókn í Cappellini kvöldskólann þar sem fullorðið fólk sem ekki hefur lokið framhaldsskóla fær tækifæri til að ljúka grunnnámi. Jafnframt bíður skólinn upp á starfsnám í rafeindavirkjun, vélfræði og siglingafræðum.
Í ferðinni fengum við góða kynningu á fyrirkomulagi fullorðinsfræðslu á Ítalíu, m.a. skipulagi, stjórnsýslu og framkvæmd náms. Í báðum skólum hittum við stjórnendur og kennara sem deildu reynslu af verkefnum sem miða að auknu aðgengi og stuðningi auk þess að ræða áskoranir í fullorðinsfræðslu. Þá fengum við líka tækifæri til þess að hitta nemendur og fá þeirra sýn á námið.
Megináhersla var lögð á tungumálakennslu. Okkur bauðst að taka þátt í kennslustund í ítölsku sem öðru máli og líka í ensku fyrir innfædda. Það var sérstaklega gaman að fá að hitta nemendur og spjalla við þá um reynsluna af náminu. Þarna var fólk með alls konar bakgrunn og á öllum aldri, sá elsti á enskunámskeiðinu var 87 ára. Það er aldrei of seint að læra!
Með í ferðinni var enskukennari frá háskólanum í Cork á Írlandi og sköpuðust þar ný og góð tengsl sem gætu orðið grunnur að áframhaldandi samskiptum og sameiginlegum verkefnum.
Auk þess að kynnast fullorðinsfræðslunni fengum við að njóta menningar og fegurðar þessa einstaka svæðis með heimsóknum til Portovenere, Lerici og Cinque Terre. Ferðin veitti dýrmætan innblástur fyrir áframhaldandi starf Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, sérstaklega varðandi inngildingu og þróun tungumálanáms fyrir fullorðna nemendur.
Í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða bjóða stéttarfélögin Sameyki, Kjölur, Verkalýðsfélag Vestfjarða og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur sínu félagsfólki að sækja valin námskeið hjá miðstöðinni sér að kostnaðarlausu.
Í boði eru fjölbreytt námskeið sem nýtast bæði í starfi og daglegu lífi. Má þar til dæmis nefna námskeið um fjármál, hagsýni í heimilshaldi, gervigreind, uppeldi og skyndihjálp. Námskeiðin eru ýmist fjarkennd eða staðkennd.
Nánari upplýsingar um námskeiðin sem í boði eru má finna undir flipanum Nám – Stéttarfélög. Skráning fer fram hér á síðunni, en einnig er hægt að hafa samband við Fræðslumiðstöðina í síma 456 5025 eða með tölvupósti frmst@frmst.is. Við skráningu er mikilvægt að taka fram hvaða stéttarfélagi fólk tilheyrir.
Fræðslumiðstöðin hvetur félagsfólk eindregið til að nýta sér þetta góða boð stéttarfélaganna – frábært tækifæri til að efla færni, auka sjálfstraust og styrkja sig í starfi.
Að sjálfsögðu eru öll námskeiðin opin öðrum. Fræðslumiðstöðin hvetur því alla til að kynna sér möguleika á endurgreiðslu þátttökugjalda hjá sínu stéttarfélagi.