Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Allir geta ræktað sínar eigin mat- og kryddjurtir

Nú er rétti tíminn til að byrja að sá mat- og kryddjurtum sem á að rækta í sumar. Laugardaginn 26. mars n.k. verður haldið námskeið um mat- og kryddjurtir hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.  Sama námskeið var haldið síðasta vor og var það samdóma álit þátttakenda þá að námskeiðið hefði verið afar gagnlegt.

Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um sáningu, ræktun og umönnun mat- og kryddjurta. Farið verður yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá mat- og kryddjurtir og hvernig best er að verjast þeim. Fjallað verður um nýtingu jurtanna og geymsluaðferðir og fara þátttakendur heim með gómsætar uppskriftir og góðar hugmyndir.

Kennari á námskeiðinu er Auður Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn. Auður hefur mikla reynslu á þessu sviði og hefur haldið fjölmörg námskeið um ýmislegt sem snýr að ræktun.

Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 á Ísafirði. Það hefst kl. 10:30 og stendur til kl. 16:00. Verð fyrir námskeiðið er 10.500 kr. 

Tengt efni
Mat- og kryddjurtir - Ísafjörður
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um sáningu, ræktun og umönnun mat- og kryddjurta.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is