Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Arfur kynslóðanna

Miðvikudaginn 16. febrúar kl. 19:00 hefst spennandi námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni sem kallast Arfur kynslóðanna.

Á námskeiðinu mun Jóna Símonía Bjarnadóttir sagnfræðingur leiðbeina þátttakendu um hvernig hægt er að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita og koma áfram til næstu kynslóða. Einnig verður fjallað um heimildagildi skjala, t.d. ljósmynda, dagbóka og bréfa og rætt um varðveislu þeirra. Þá verður kynning á spurningalistum Þjóðminjasafnsins.

Þetta námskeið hefur verið haldið einu sinni áður og komu þar fram margar skemmtilegar frásagnir sem þátttakendur festu á blað.

Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum kl. 19:00-21:00 og stendur yfir í 3 vikur. 

Tengt efni
Arfur kynslóðanna
Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig hægt er að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita og koma áfram til næstu kynslóða.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is