Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Bakskóli - nýtt námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni

Þriðjudaginn 15. mars n.k. hefst námskeið í bakskóla Sjúkraþjálfunar Vestfjarða ehf. í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.  Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt námskeið er í boði hjá Fræðslumiðstöðinni. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa átt við bakvandamál að stríða og ekki síður þeim sem vilja stunda fyrirbyggjandi starf.

Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu stoðkerfisins, hreyfingafræði, líkamsbeitingu, líkamsstöðu og líkamsvitund, áhættuþætti og verklegar æfingar.

Námskeiðið stendur í 4 vikur, kennt tvisvar sinnum í viku klukkustund í senn. Tímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17-18.

Kennarar eru Ólafur Halldórsson og Steingrímur Þorgeirsson lögg. sjúkraþjálfarar.

Tengt efni
Bakskóli
Námskeið í bakskóla Sjúkraþjálfunar Vestfjarða ehf. í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu stoðkerfisins, hreyfingafræði, líkamsbeitingu, líkamsstöðu og líkamsvitund, áhættuþætti og verklegar æfingar.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is