Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Baráttan um Vestfirði á Sturlungaöld - fyrirlestur 28. apríl

Í vetur hefur Fræðslumiðstöðin í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og fleiri aðila, gengst fyrir röð fyrirlestra undir yfirskriftinni Menningararfurinn. Fyrirlestrarnir hafa verið í gegnum fjarfundabúnað og hægt að sækja þá á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Umfjöllunarefnin hafa verið fjölbreytt og fróðleg, til dæmis Vatnsfjörður, mannabein og mannamein, Þjóðfræðistofa og þjóðmenning og saga í atvinnusköpun.

Fyrirlestrarnir hafa verið þriðja fimmtudag í mánuði en þar sem þann dag ber upp á skírdag og sumardaginn fyrsta þá verður apríl fyrirlesturinn haldinn viku seinna eða fimmtudaginn þann 28. kl 17:00-18:00. Yfirskriftin að þessu sinni er Baráttan um Vestfirði á Sturlungaöld. Þar mun Torfi H Tulinius fjalla um helstu þætti þeirrar hatrömmu baráttu sem geisaði milli valdamanna á Vestfjörðum á fyrra hluta 13. aldar og hvernig hún leiddi til þess að höfðingjar af öðrum svæðum náðu undirtökum þar

Tengt efni
Menningararfurinn - Baráttan um Vestfirði á Sturlungaöld
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og fleiri aðila, gengst fyrir röð fyrirlestra í vetur undir yfirskriftinni Menningararfurinn. Fimmtudaginn 28. apríl mun Torfi Tulinius fjalla um helstu þætti þeirrar hatrömmu baráttu sem geisaði milli valdamanna á Vestfjörðum á fyrra hluta 13. aldar og hvernig hún leiddi til þess að höfðingjar af öðrum svæðum náðu undirtökum þar.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is