Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fjölbreytt úrval námskeið í febrúar

Í febrúar verður ýmislegt í boði hjá Fræðslumiðstöðinni hvort sem fólk vill auðga líf sitt með skemmtilegum fróðleik, læra nýtt tungumál, fræðast um sálrænan stuðning eða ná tökum á ákveðnum tölvuforritum.

Eftirtalin námskeið hafa verið auglýst í febrúar :

  • 8. febrúar hefst smáskipanám og er enn hægt að taka við nokkrum skráningum á það námskeið.
  • 10. febrúar er boðið upp á námskeið í fjarfundi frá Endurmenntun Háskóla Íslands sem kallast því skemmtilega nafni: Mátti kerling ekki skrifa í friði – skáldkonan Guðrún frá Lundi og verk hennar.
  • 12. febrúar stendur Rauði kross Íslands í samvinnu við Fræðslumiðstöðina fyrir námskeiði í sálrænum stuðning og er það námskeið fólki að kostnaðarlausu.
  • 16. febrúar hefst námskeiðið Arfur kynslóðanna þar sem fólk fær tilsögn í því að skrá niður atburði, minningar eða annað sem það vill varðveita og kannski koma til næstu kynslóðar.
  • 16. febrúar hafa verið auglýst tvö ítölskunámskeið, annars vegar fyrir byrjendur og hins vegar fyrir lengra komna. Gert er ráð fyrir að báðir hópar mæti þennan dag og þá verður í sameiningu gengið frá hvenær hvor hópur um sig sækir tíma.
  • 17. febrúar verður boðið upp hebresku, en það tungumál hefur aldrei verið í boði hjá Fræðslumiðstöðinni áður.
  • 17. febrúar er komið að fjórða fyrirlestrinum um menningararfinn og verður að þessu sinni fjallað um Þjóðfræðistofu á Ströndum og þau verkefni sem hún sinnir. Fyrirlesturinn verður í fjarfundi frá Hólmavík.
  • 21. febrúar er auglýst excel námskeið og verður það kennt tvo morgna í viku kl. 8:30-10:00. Upplagt fyrir þá sem vilja ná betri færni í notkun þessa forrits.
  • 24. febrúar stendur til að hefja námskeið í AutoCad fyrir byrjendur en margir iðnaðarmenn og aðrir þurfa að kunna einhver skil á því forriti.


Eins og þessi upptalning ber með sér verður af ýmsu að taka þennan stysta mánuð ársins.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is