Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Fyrirlestur í fornleifafræði - mannabein og mannamein

imageÍ vetur stendur Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fornleifastofnun Íslands, Vestfirðir á miðöldum ásamt fleiri aðilum, fyrir röð fyrirlestra undir heitinu Menningararfurinn. Fyrirlestrarnir eru sendir út í gegnum fjarfundabúnað þannig að fólk á að getað notið þeirra sem víðast.

Fyrsti fyrirlesturinn var fimmtudaginn 21. október sl, þar sem Guðrún Alda Gísladóttir forleifafræðingur fjallaði um Uppgröftinn í Vatnsfirði.

Nú er komið á næsta fyrirlestri. Fimmtudaginn 2. desember nk. mun Hildur Gestsdóttir fornleifafræðingur fjalla um efnið Mannabein og mannamein.

Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og verður að minnsta kosti sendur til Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði. Um aðra staði ræðst af áhuga.

Reikna má með að fyrirlesturinn taki um eina klukkustund.

Aðgangseyrir er 1.000 kr. 

Tengt efni
Menningararfurinn - Mannabein og mannamein
Annar fyrirlesturinn um menningararfinn. Hildur Gestsdóttir fornleifafræðingur fjalla um efnið Mannabein og mannamein. Fyrirlesturinn verður í gegnum fjarfundabúnað.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is