Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Grunnnám byggingarliða. Nám fyrir fólk í mannvirkjagerð.

Kynningarfundur á námsskránni Grunnnám byggingarliða verður fimmtudaginn 25. nóvember nk. Fundurinn verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði og hefst kl. 20.

Grunnnám byggingarliða er 45 kennslustuna námsskrá frá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Í námsskránni er fjallað um skipulagsteikningar, mælitækni, framleiðslukostnað, jarðvegsfyllingar og burðarefni, verkáætlanir, flutningatækni, gæðastjórnun, samskipti, rekstrarumhverfi fyrirtækja, réttindi og skyldur og öryggismál.

Hverjum ætlað Þeim sem eru fullra 20 ára og hafa starfað í a.m.k. 6 mánuði hjá fyrirtækjum sem annast gatna- og jarðvinnu, sem framleiða og selja varning vegna gatnagerðar, húsbygginga- og mannvirkjagerðar eða hjá byggingafyrirtækjum.

Mat til styttingar á námi við framhaldsskóla Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta Grunnnám byggingarliða til styttingar á námi í framhaldsskóla til allt að 3 einingum. Meta má námið á móti allt að 3 einingum í vali, 3 einingum á kjörsviði og/eða til almennra greina eftir styrkleika viðkomandi einstaklings.

Sjá nánar.

Tengt efni
Byggingarliðar - grunnnám
Þetta er 45 kennslustunda nám ætlað þeim sem hafa stutta skólagöngu að baki, eru fullra 20 ára og hafa starfað í a.m.k. 6 mánuði hjá fyrirtækjum sem annast gatna- og jarðvinnu, hjá byggingarfyrirtækjum eða hjá fyrirtækjum sem framleiða og selja varning vegna gatnagerðar, húsbygginga- og mannvirkjagerðar.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is