Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Heimsóknir í Árneshrepp

Á dögunum heimsóttu þau Smári Haraldsson forstöðumaður og Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri Árneshrepp. Komu þau við á nokkrum stöðum í sveitinni, meðal annars í Finnbogastaðaskóla og Kaupfélaginu í Norðurfirði og hittu fólk og ræddu um möguleika á námskeiðahaldi í hreppnum. Eftir helgina ætla svo þeir Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi og Jón Arnar Gestsson að fylgja heimsókninni eftir og kynna námsframboð og kanna áhuga fólks. Meðal þess sem kynnt verður eru áform um viðamikið nám í fjarnámi, eða svokallaðan Grunnmenntaskóla sem er 300 kennslustunda nám. 

Tengt efni
Grunnmenntaskólinn - Drangsnes
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám sem skipt er á tvær annir. Námið hentar vel þeim sem hafa litla formlega menntun eða hafa ekki verið í námi lengi en vilja komast af stað.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is