Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Kynning á Námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum

Þriðjudaginn 18. janúar kl. 18:00 verður kynning á námsskránni Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Námið er 300 kennslustundir og ætlað fullorðnu fólki sem hafið hefur nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi. Námið hefur hliðsjón af aðalnámskrá framhaldskóla í íslensku, tungumálum, stærðfræði og lífsleikni.

Menntamálaráðuneytið heimilar að námið sé metið til allt að 24 eininga á framhaldsskólastigi, en það er þó undir hverjum framhaldsskóla komið hversu margar einingar fást metnar.

Fræðslumiðstöðin hefur áður kennt þessa námsskrá með góðum árangri. Námið er kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa hætt í skóla af einhverjum ástæðum en hafa áhuga á að komast af stað aftur og jafnvel halda eitthvað áfram að því loknu.

Á kynningunni verður farið yfir fyrirkomulag námsins og tekin ákvörðun um kennslutíma í samráði við væntanlega þátttakendur. Kynningin er að sjálfsögðu öllum opin og eru áhugasamir hvattir til að mæta.

image
Frá kennslu í almennum greinum veturinn 2010.
.

Tengt efni
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 23 ára, eru starfandi á vinnumarkaði og hafa hafið nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi. Námið skiptist á tvær annir og hefst eftir miðjan janúar 2011.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is