Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Lærum spænsku – enn er hægt að skrá sig

Fimmtudaginn 21. október hefst spænskunámskeið hjá Fræðslumiðstöðinni. Þetta er upplagt tækifæri fyrir þá sem vilja læra nýtt tungumál.

Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku og verður farið í grunnatriði í málfræði og málnotkun; hlustun, tal, lestur og ritun. Þátttakendur læra helstu atriði sem þarf að kunna þegar ferðast er til spænskumælandi landa.

Námskeiðið er 24 kennslustundir og verður kennt átta fimmtudaga kl. 18:00-20:00.

Kennari á námskeiðinu er Cecilia Garate.

Enn er hægt að skrá sig.

Tengt efni
Spænska I
Námskeið fyrir þá sem hafa lítinn sem engan grunn í spænsku. Áhersla á uppbyggingu orðaforða, málfræði og þjálfun í málnotkun. Kennsla fer að mestu leyti fram á spænsku og ensku.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is