Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Menningararfurinn - Rótað í framtíðinni (með menningararfinn á bakinu)

Næsti fyrirlestur um menningararfinn verður fimmtudaginn 17. mars nk. Þá mun Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fjalla um hvernig þjóðmenning og saga hefur með fjölbreyttum hætti verið nýtt við atvinnusköpun á Vestfjörðum. Um leið verður skoðað hvaða áhrif slík notkun á menningararfi svæðisins hefur á ímynd þess út á við og sjálfsmynd íbúanna. Skyggnst verður inn í framtíðina og rætt um möguleika á fjölgun skapandi starfa og frekari uppbyggingu á þessu sviði.

Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og reikna má með að hann taki um eina klukkustund. Fyrirlesturinn verður í gegnum fjarfundabúnað frá Hólmavík og sendur til Ísafjarðar og Patreksfjarðar.

Fyrirlesturinn er í röð erinda undir heitinu Menningararfurinn, sem Fræðslumiðstöð Vestfjarða stendur fyrir í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum og Minjavörð Vestfjarða.

Tengt efni
Menningararfurinn - Rótað í framtíðinni (með menningararfinn á bakinu)
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og fleiri aðila, gengst fyrir röð fyrirlestra í vetur undir yfirskriftinni Menningararfurinn. Fimmtudaginn 17. mars mun Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fjalla um hvernig þjóðmenning og saga hefur með fjölbreyttum hætti verið nýtt við atvinnusköpun á Vestfjörðum.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is