Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Náms- og starfsráðgjöf og kynningarundur um raunfærnimat

Björn E. Hafberg náms- og starfsráðgjafi verður á ferð um Vestfirði 15. til 20. ágúst n.k. Hann verður á Patreksfirði mánudaginn 15. ágúst og færir sig norðar eftir því sem líður á vikuna. Á föstudag og laugardag verður hann á norðursvæðinu.

Fimmtudagskvöldið 18. ágúst, verður Björn með kynningarfund á raunfærnimati hjá Fræðslumiðstöðinni á Ísafirði. Fundurinn hefst kl. 20.

Náms- og starfsráðgjafi getur veitt upplýsingar um nám og störf, lagt fyrir áhugasviðsgreiningar, aðstoðað við ferilsskrár o.fl. Fólk er hvatt til að nýta sér þjónustu hans og panta viðtalstíma hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025 eða með tölvupósti á smari@frmst.is

Þá er sérstaklega vakin athygli á kynningarfundinum um raunfærnimatið. Raunfærnimat á bæði við fólk sem starfar í iðngreinum án þess að hafa lokið sveinsprófi og við ýmis önnur störf. Í raunfærnimati í iðngreinum er þekking og færni sem fólk hefur aflað sér úti á vinnumarkaðinum metin á móti áföngum í iðnnámi. Í nokkrum störfum, sem ekki eru löggiltar iðngreinar, hefur einnig verið þróað raunfærnimat. Komið og skoðið möguleikana.

Tengt efni
Kynningarfundur um raunfærnimat
Í raunfærnimati er gengið út frá þeirri grundavallarsýn að meira máli skipti hvaða þekkingu og færni fólk búi yfir, heldur en hvernig þess hafi verið aflað. Þess vegna er færni sem fólk hefur aflað sér úti á vinnumarkaðinum metin á móti námi í skóla. Komdu og fræðstu meira.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is