Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Námskeið á Flateyri

Miðvikudaginn 25. maí hefst námskeið í íslensku fyrir útlendinga á Flateyri. Um er að ræða 30 kennslustunda námskeið sem stendur í viku, kennt verður daglega kl. 8:00-12:00 og lýkur námskeiðinu 31. maí. Á námskeiðinu verður lögð megin áhersla á talmál. Kennarar eru Heiðrún Tryggvadóttir og Joanna Majewska.

Einnig er að fara af stað tölvunámskeið á Flateyri miðvikudaginn 25. maí sem lýkur 31. maí. Kennt verður daglega en þar sem tölvurnar eru ekki margar verður boðið upp á tvo hópa, annars vegar kl. 13:00 og hins vegar kl. 15:00.  Á námskeiðinu verður fyrst og fremst farið í notkun á tölvupósti og interneti.

Bæði námskeiðin eru kennd í Bryggjuhúsinu á Flateyri. Þau eru haldin í samvinnu við Vinnumálastofnun en allir eru velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Sigurborg í síma 456 5011.

Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is