Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skrautskriftarnámskeiði frestað fram í mars

Námskeiði í skrautskrift sem vera átti nú í lok nóvember hefur verið frestað þar til eftir áramótin. Ný dagsetning hefur verið ákveðin 12. og 13. mars.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Jens Kr. Guðmundsson sem hefur áralanga reynslu á þessu sviði. Á námskeiðinu verður kennt og þjálfað gotneskt letur og ítölsk skrift ásamt gerð upphafsstafa.

Jens fullyrðir að ekki skipti máli hversu góða rithönd fólk hafi fyrir, í skrautskriftinni sé verið að þjálfa aðrar hreyfingar og allir geti náð tökum á henni með æfingunni. 

Tengt efni
Skrautskrift
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Jens Kr. Guðmundsson. Á námskeiðinu verður kennt og þjálfað gotneskt letur og ítölsk skrift ásamt gerð upphafsstafa
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is