Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skráningar á vornámskeið eru hafnar

Næstu námskeið í boði

Námsleiðir FA  01/02/2012
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum - Patreksfjörður
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 23 ára, eru starfandi á vinnumarkaði og hafa hafið nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi. Námið skiptist á þrjárannir og hefst í byrjun febrúar 2012.
Tómstundir  03/02/2012
Olíumálun - Patreksfirði
Á námskeiðinu verður farið í grunnþætti oíumálverksins. Unnið verður með aðferðinni “að mála frá mögru upp í feitt”. Leitast verður við að þjálfa færni nemenda í listsköpun og auka þekkingu á myndlist, sem auk vinnunnar felst í að fletta inn í kennsluna dæmi og fróðleik úr listasögunni.
Tómstundir  04/02/2012
Víravirki
Á þessu námskeiði verða kenndar grunnaðferðir í íslensku víravirki sem byggjast á alda gömlum hefðum við þjóðbúningagerð. Innifalið í námskeiðsgjaldi er efni í einn hlut, kross eða blóm (hálsmen).
Réttindanám  07/02/2012
Smáskipanám - Ísafjörður
Sá sem lokið hefur námi þessu, sem er samkvæmt reglugerð nr. 175 frá 2008 um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum hefur öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem skipstjóri/stýrimaður á skipum styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum, eftir 12 mánaða siglingatíma (smáskipaskírteini).
Endur- og símenntun  07/02/2012
Markaðsmál og almannatengsl - Hólmavík
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Endur- og símenntun  07/02/2012
Markaðsmál og almannatengsl - Reykhólar
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Endur- og símenntun  09/02/2012
Markaðsmál og almannatengsl - Patreksfjörður
Námskeið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvarinnar.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum.
Endur- og símenntun  10/02/2012
Kvíði barna og unglinga - fagnámskeið - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Haldið í samstarfi við geðsvið Landspítalans. Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun. Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Endur- og símenntun  13/02/2012
Helstu flokkar geðraskana - fjarkennt frá Framvegis
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um og öðlast þekkingu á algengustu geðsjúkdómum fullorðinna, tíðni, orsökum, einkennum, meðferðarúrræðum og horfum.
Tungumál  14/02/2012
Norska I
Námskeið ætlað byrjendum í norsku. Lögð verður áhersla á talmál og farið í undirstöðuatriði í málfræði og orðaforða. Einnig verður fjallað um norskt samfélag, menningu, siði og venjur.
Tungumál  14/02/2012
Íslenska fyrir útlendinga - Ísafjörður
Í náminu er lögð megináhersla á að fólk geti bjargað sér í daglegu lífi og úti í samfélaginu jafnframt því sem lagður er grunnur að málfræðiþekkingu.
Tómstundir  16/02/2012
Náttúran - Fuglarannsóknir á Vestfjörðum - fjarkennt um Vestfirði
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Tómstundir  21/02/2012
Ljósmyndun - grunnnámskeið - Ísafjörður
Kynnt verða undirstöðuatriði ljósmyndunar og að hverju þarf að huga við myndatökur til að myndirnar verði eins og við viljum hafa þær.
Endur- og símenntun  21/02/2012
Bókhald og skjalavarsla - Ísafjörður
Þátttakendur fá innsýn í bókhaldslög og uppbyggingu skjalavörslu fyrirtækja. Þátttakendur fá þjálfun í afstemmingu, gerð reikninga, kvittana, færslu launa og viðkomandi gjalda. Ennfremur flokkun, merkingu og að stemma af fylgiskjöl. Farið verður í túlkun rekstrarreikninga, efnahagsreikninga og fjármagnsstreymis og að setja upp áætlanir um rekstur, efnahag og greiðslur.
Tómstundir  22/02/2012
Þjálfunarlífeðlisfræði - tenging líkama og athafna í gegnum þjálfunarferli líkamans - Ísafjörður
Námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á íþróttum og líkamsþjálfun og vilja vita meira um áhrif þjálfunar á líkamann. Fjallað verður um uppbyggingu líkamans. Einnig hvað gerist við þjálfun; styktarþjálfun, þolþjálfun og liðferilsþjálfun. Mörk líkamans, meiðsli, úrlausnir og árangur.
Tölvur  27/02/2012
Facebook sem markaðstæki - grunnnámskeið - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Facebook býður upp á sérstakar aðferðir og uppsetningu til að kynna fyrirtæki, vörur og þjónustu t.d. með uppsetningu sérstakra síðna, sem eru strax aðgengilegar í Google leitarvélinni, ásamt markvissri markaðssetningu auglýsinga. Þeir sem hyggja á markaðssetningu á Facebook síðum þurfa að kunna skil á mörgum nýjum hugtökum, aðferðafræði og tækni. Á þessu grunnnámskeiði er fyrst og fremst farið í rétta, tæknilega uppbyggingu Facebook síðunnar, þannig að hún nýtist sem allra best í samskiptum við markaðinn. Inn í tæknilegar leiðbeiningar er fléttað hugtökum og aðferðum markaðssetningar á samfélagsvefjum.
Tómstundir  01/03/2012
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Heimur harmónikkurnar - Ísafjörður
Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir og Ásgeir S. Sigurðsson kynna fólk hinn heillandi heim harmónikkunnar. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Endur- og símenntun  03/03/2012
Sálrænn stuðningur - Ísafjörður
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Námskeiðið er frítt.
Endur- og símenntun  05/03/2012
Lausnamiðuð nálgun - fjarkennt frá EHÍ
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja horfa á lausnirnar frekar en vandamálin. Markmið og tilgangur námskeiðsins er að kynna þátttakendum árangursríka aðferð og ýmsar leiðir sem geta nýst fólki við að ná markmiðum sínum í lífi og starfi.
Endur- og símenntun  06/03/2012
Öflugt sjálfstraust - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Kennsla er í formi fyrirlestra, umræðna, verkefna og æfinga. Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig og efla eigið sjálfstraust auk þess að hafa jákvæð áhrif á aðra.
Endur- og símenntun  07/03/2012
Val á rekstrarformi fyrir atvinnustarfsemi - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Þeir sem eru að hefja atvinnurekstur velta iðulega fyrir sér hvaða form þeir eigi að hafa á fyrirtæki sínu. Eiga þeir að stunda atvinnureksturinn á eigin kennitölu eða kennitölu félags og hvaða félags er þá gjarnan spurt. Ætlað þeim sem eru að hefja atvinnurekstur eða eru að íhuga að breyta rekstrarformi fyrirtækis síns.
Endur- og símenntun  14/03/2012
Stjórnun breytinga - hlutverk stjórnenda og þáttur starfsmanna - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Kynntar verða hagnýtar lausnir í breytingum sem byggja á helstu kenningum og aðferðum breytingastjórnunar. Námskeiðið er hugsað fyrir alla stjórnendur sem vilja auka við þekkingu sína í tengslum við innleiðingu og stjórnun breytinga. Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan skilning á stjórnun breytinga og geti leitt breytingar í fyrirtækjum og stofnunum.
Endur- og símenntun  14/03/2012
Sálgæsla og áfallahjálp - samfylgd í kjölfar áfalla - - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni og innsæi á bæði sálræna þætti og tilvistarleg áhrif áfalla á líf skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að nota til að hjálpa þolendum áfalla og aðstandendum sem þurfa að vinna með þungbæra lífsreynslu. Námskeiðið er einkum ætlað fólki er starfar á heilbrigðis- og félagssviði.
Tómstundir  15/03/2012
Náttúran - Að þvera eða ekki þvera - fjarkennt um Vestfirði
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Endur- og símenntun  30/03/2012
Vinnugleði - mín vinna, mitt viðhorf - fjarkennt frá EHÍ
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Hagnýtt námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á að bæta sig, blómstra og auka vinnugleði sína í daglegu starfi.
Tómstundir  05/04/2012
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Stuð, stuð, stuð. Saga íslenska rokksins og poppsins 1950 – 2010 - Ísaf
Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem dr. Gunni fjallar um sögu íslenska rokksins og poppsins á 60 ára tímabili. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Tómstundir  18/04/2012
Ferðamennska - Ísafjörður
Fjallað verður um hvernig á að stilla bakpokann, útbúnað til ferðar, fatnað, kortalestur, áttavitanotkun og GPS-notkun. Einnig óhöpp í útilegum, hvað á að hafa í sjúkratöskunni, straumvötn og umgengni í náttúrunni.
Réttindanám  21/04/2012
Vélgæsla - Ísafjörður
Námskeiðið veitir rétt til að vera vélavörður á skipum 12 metrar og styttri að skráningarlengd með vélarafl 750 kW eða minna (Skírteini: Smáskipa vélavörður (SSV)).
Tómstundir  26/04/2012
Náttúran - Villtar nytjajurtir á Vestfjörðum - fjarkennt um Vestfirði
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Tómstundir  03/05/2012
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Niður miðja Moldá - Ísafjörður
Ólafur Kristjánsson fjallar um tónverkið Moldá eftir tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is