Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Tómstundir

Víravirki   04/02/2012
Á þessu námskeiði verða kenndar grunnaðferðir í íslensku víravirki sem byggjast á alda gömlum hefðum við þjóðbúningagerð. Innifalið í námskeiðsgjaldi er efni í einn hlut, kross eða blóm (hálsmen).
Olíumálun - Patreksfirði   03/02/2012
Á námskeiðinu verður farið í grunnþætti oíumálverksins. Unnið verður með aðferðinni “að mála frá mögru upp í feitt”. Leitast verður við að þjálfa færni nemenda í listsköpun og auka þekkingu á myndlist, sem auk vinnunnar felst í að fletta inn í kennsluna dæmi og fróðleik úr listasögunni.
Hreinsunarhelgi á Patreksfirði   
Tveggja sólarhringa hvíldar- og hreinsunarhelgi sem byrjar á föstudagskvöldi og endar á sunnudagskvöldi. Unnið er með öndun, slökun og jógastöðvar sem stuðla að hreinsun líkamans og hugans
Þessi gamli bær - fjarkennt um Vestfirði   
Fjallað verður um uppbyggingu Hólmavíkur sem þéttbýliskjarna, staðhætti, sögu, menningu og náttúru. Námskeiðið verður kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Hólmavík og því hægt að sækja það þar sem slíkur búnaður er til staðar.
Skrautskrift - Hólmavík   
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Jens Kr. Guðmundsson. Á námskeiðinu verður kennt og þjálfað gotneskt letur og ítölsk skrift ásamt gerð upphafsstafa.
Heklaðir skartgripir - Hólmavík   
Námskeið fyrir þá sem langar að hekla eigin skartgripi. Sýndir verða heklaðir hringar, eyrnalokkar, armbönd, hálsmen, hárbönd og ýmislegt til þess að festa á spennur og spangir.
Arfur kynslóðanna - Hólmavík   
Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig hægt er að bera sig til við að skrá niður lífshlaup, skemmtilegar sögur – munnmælasögur eða sögur úr lífinu – minningar sem tengjast hlutum eða stað eða annað sem gaman er að varðveita og koma áfram til næstu kynslóða.
GPS staðsetningartæki - Patreksfjörður   
Notkun GPS staðsetningartækja kennd. Fyrst verður farið yfir grunnatriði tækjanna og notkunarmöguleika og síðan verða tækin prófuð úti. Ætlast er til að þátttakendur eigi nýleg GPS staðsetningartæki með Íslandskorti.
Þjálfunarlífeðlisfræði - tenging líkama og athafna í gegnum þjálfunarferli líkamans - Ísafjörður   22/02/2012
Námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á íþróttum og líkamsþjálfun og vilja vita meira um áhrif þjálfunar á líkamann. Fjallað verður um uppbyggingu líkamans. Einnig hvað gerist við þjálfun; styktarþjálfun, þolþjálfun og liðferilsþjálfun. Mörk líkamans, meiðsli, úrlausnir og árangur.
Tréútskurður - Ísafjörður   
Byrjendanámskeið í tréútskurði, þar sem kynnt eru fyrstu járnin og brýnsla þeirra, beiting járna, uppsetning vinnuaðstöðu, ýmis vinnutækni, viðir kynntir til leiks, öryggismál og útbúinn hlutur sem þátttakendur taka með sér heim.
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Niður miðja Moldá - Ísafjörður   03/05/2012
Ólafur Kristjánsson fjallar um tónverkið Moldá eftir tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Stuð, stuð, stuð. Saga íslenska rokksins og poppsins 1950 – 2010 - Ísaf   05/04/2012
Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem dr. Gunni fjallar um sögu íslenska rokksins og poppsins á 60 ára tímabili. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Ýmsar tónlistarstefnur – hver er munurinn? - Ísafjörður   
Halldór Smárason fjallar um hinar ýmsu tónlistarstefnur og muninn á þeim. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Tónlistin frá ýmsum hliðum - Heimur harmónikkurnar - Ísafjörður   01/03/2012
Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir og Ásgeir S. Sigurðsson kynna fólk hinn heillandi heim harmónikkunnar. Námskeiðið er hluti af röð stuttra námskeiða um tónlist sem Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa saman að.
Mósaík - Ísafjörður   
Kenndar verða aðferðir við að gera hluti úr mosaíkbrotum. Speglar, blómapottar, blómavasar, myndarammar og lampar er meðal þess sem gerðir verða.
Náttúran - Villtar nytjajurtir á Vestfjörðum - fjarkennt um Vestfirði   26/04/2012
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Náttúran - Fuglarannsóknir á Vestfjörðum - fjarkennt um Vestfirði   16/02/2012
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Náttúran - Að þvera eða ekki þvera - fjarkennt um Vestfirði   15/03/2012
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni.
Ljósmyndun – námskeið fyrir eldri borgara - Ísafjörður   
Kynnt vera undirstöðuatriði ljósmyndunar og að hverju þarf að huga við myndatökur til að myndir verði eins og við hugsum okkur. Einnig verður farið í helstu þætti í sambandi við að hlaða inn myndum í tölvu.
Ljósmyndun - grunnnámskeið - Ísafjörður   21/02/2012
Kynnt verða undirstöðuatriði ljósmyndunar og að hverju þarf að huga við myndatökur til að myndirnar verði eins og við viljum hafa þær.
Jurtir og náttúrulækningar - Ísafjörður   
Á námskeiðinu verður þátttakendum kennt að þekkja plöntur sem nýttar eru sem tejurtir eða til lækninga. Farið verður yfir útlit plantna og síðan farið í vettvangsferð
Ferðamennska - Ísafjörður   18/04/2012
Fjallað verður um hvernig á að stilla bakpokann, útbúnað til ferðar, fatnað, kortalestur, áttavitanotkun og GPS-notkun. Einnig óhöpp í útilegum, hvað á að hafa í sjúkratöskunni, straumvötn og umgengni í náttúrunni.
Sushi - Patreksfjörður   
Fyrirlestur um Sushi, hverju þarf að passa sig á við val á hráefni, hvernig á að meðhöndla hrísgrjónin o.fl. Sýnikennsla á makirúllum, stórum og litlum og síðan prófa þátttakendur sjálfir. Nigiri sýnikennsla, sýnt hvernig fiskurinn er skorinn og hvernig grjónin eru mótuð. Að lokum er þáttakendum kennt að borða sushi og fá sushi til að taka með sér heim.
Ísafjörður | Suðurgata 12 | Pósthólf 122 | 400 Ísafjörður | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is
Flateyri | Eyrarvegur 8 | 425 Flateyri | Sími: 456 5027 | sigurborg@frmst.is
Hólmavík | Þróunarsetrið | Höfðagata 3 | 510 Hólmavík | Sími:451 0080 | kristin@frmst.is
Patreksfjörður | Þekkingarsetrið Skor | Aðalstræti 53 | 450 Patreksfjörður | Sími:490 5095 | maria@frmst.is