Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

„Stiklur” 5.  Fjölbreyttar aðferðir í fullorðinsfræðslu

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Sigrún Jóhannesdóttir, kennslufræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Verð kr: 3.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 17/08/2009 - Umsóknarfrestur til: 15/08/2009
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath: Kennt mánudaginn 17. ágúst kl. 11:00-16:00.

Þátttakendur prófa, skoða og skilgreina ýmsar hugmyndir um árangursríkar náms- og kennsluaðferðir í fullorðinsfræðslu, hefðbundnar jafnt sem óhefðbundnar, og hvernig þær henta mismunandi námsmarkmiðum og aðstæðum á vettvangi. Miðað er við að þátttakendur útbúi eigin möppu með aðferðum sem þeir hugsa sér að nýta í eigin kennslu.

Dagskrá

  1. Inngangur og kynning - markmið, tímanýting, skipulag og gögn
  2. Samskipti – kennsla og erfiðir einstaklingar
  3. Aðferðir rýndar
    • Hraðnámsaðferðir almennt
    • 15-20 mismunandi aðferðir kynntar og þátttakendur skipta sér í hópa til að rýna þær aðferðir sem þeir velja sér.
  4. Mat og slit

Námskeiðið fyrir alla þá sem koma að kennslu fullorðinna á einn eða annan hátt. Fræðslumiðstöðin vill sérstaklega hvetja þá sem kenna fyrir miðstöðina að sækja námskeiðið.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is