Kennari: Margrét Högnadóttir, viðskiptafræðingur
Verð kr: 16.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði
Námskeið hefst: 28/01/2009 - Umsóknarfrestur til: 28/01/2009
Fjöldi kennslustunda: 15
Ath: Kennt á miðvikudögum kl. 19 - 21.
Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlast skilning á bókhaldshringrásinni og tileinki sér helstu reglur tvíhliða bókhalds. Á námskeiðinu verður fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhaldskerfis, opnun, færslur og lokun bókhalds eftir rekstrartímabilum. Einnig er farið í uppgjör virðisaukaskatts og hvernig á að skila vsk skýrslu. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem nú þegar sjá um bókhald í minni fyrirtækjum, eða ætla sér að gera það, og vilja öðlast þekkingu á viðfangsefninu. Þá er námskeiðið hentugt einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur sem vilja vera sjálfbjarga með bókhaldið.