Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Bókhald og skjalavarsla - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Halldór Halldórsson.
Verð kr: 42.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Fjöldi kennslustunda: 30
Ath: Haldið þegar næg þátttaka fæst.

Námskeið fyrir þá sem koma að rekstri fyrirtækja eða bókhaldi.

Þátttakendur fá innsýn í bókhaldslög og uppbyggingu skjalavörslu fyrirtækja. Þátttakendur fá þjálfun í afstemmingu, gerð reikninga, kvittana, færslu launa og viðkomandi gjalda. Ennfremur flokkun, merkingu og að stemma af fylgiskjöl. Farið verður í túlkun rekstrarreikninga, efnahagsreikninga og fjármagnsstreymis og að setja upp áætlanir um rekstur, efnahag og greiðslur. Þá fá þátttakendur þjálfun í að greina kostnað og tekjur fyrirtækja og að beita ólíkum aðferðum við verðlagningu. Farið verður í grunnþætti Excel forritsins og það notað við úrlausn verkefna. Þannig verður tvinnuð saman grunnþekking á forritinu og notkun þess sem verkfæris við lausn verkefna.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is