|
||||
|
|
Ef Facebook væri land væri það meðal tíu fjölmennustu landa heims og fer stækkandi. Á aðeins fjórum árum hefur Facebook vaxið frá því að vera samskiptasíða háskólastúdenta í Bandaríkjunum í að verða alþjóðlegt tengslanet. Það tók 38 ár fyrir útvarpið að ná til 50 milljón notenda - það tók Facebook 2 ár að ná til sama fjölda. Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Facebook býður upp á sérstakar aðferðir og uppsetningu til að kynna fyrirtæki, vörur og þjónustu t.d. með uppsetningu sérstakra síðna, sem eru strax aðgengilegar í Google leitarvélinni, ásamt markvissri markaðssetningu auglýsinga. Á þessu námskeiði verður farið í uppsetningu síðna fyrir fyrirtæki, vörur, þjónustu, stofnanir og félagasamtök. Skoðað verður hver er munurinn á “venjulegri” facebook síðu og síðum sem gegna markaðshlutverki. Auglýsingar fyrir samskiptanetið eru skoðaðar sérstaklega og þá rætt um markvissa uppsetningu, orðaval og markhópa. Einnig verður fjallað um hvernig Facebook vinnur með og tengist öðrum netmiðlum fyrirtækisins t.d. með notkun RSS feeda.
Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntu Háskóla Íslands. Mikilvægt að skrá sig tímanlega.