Kennari: Ólafur Halldórsson, lögg. sjúkraþjálfari og svæðisleiðsögumaður.
Verð kr: 11.600 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 25/04/2012 - Umsóknarfrestur til: 25/04/2012
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt miðvikudaga kl. 20:00 - 21:20, hefst 25. apríl. Hægt að taka hálft námskeið. Uppgefið verð er fyrir heilt námskeið.
Námskeið fyrir fólk sem langar út af malbikinu.
Fjallað verður um hvernig á að stilla bakpokann, útbúnað til ferðar, fatnað, kortalestur, áttavitanotkun og GPS-notkun. Einnig óhöpp í útilegum, hvað á að hafa í sjúkratöskunni, straumvötn og umgengni í náttúrunni.
Efninu verður skipt í tvo sjálfstæða hluta þannig að þátttakendur geta vali að taka annað hvort tvö skipti eða fjögur. Kennsluáætlunin er eftirfarandi:
- 25.04.2012 Kortalestur, mælikvarðar korta, leiðarval, tímaáætlanir, UTM og Atlaskort. Áttaviti, stefna fundin á korti, réttvísandi stefna. Staðsetning miðuð út, stefna lögð út, segulnorður, misvísun, misvísandi stefna (göngustefna).
- 02.05.2012 Útbúnaður til göngu og fjallaferða: Einangrunarefni og öndunarhimnur. Árangursrík hópstjórnun í gönguferðum.
- 09.05.2012 Staðsetning með GPS, stillingar og notkun. Óhöpp í óbyggðum. Hvað er í sjúkratöskunni? Viðbrögð við óvæntum uppákomum.
- 16.05.2012 Straumvötn. Gerðir straumvatna. Að lesa í straumvatn. Hvar skal vaða? Umgengni í gönguferðum. Umgengni á tjaldstæðum og í fjallaskálum.