Kennari: Edda Björgvinsdóttir
Verð kr: 1.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Námskeið hefst: 10/11/2011 - Umsóknarfrestur til: 15/11/2011
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Haldið fimmtudaginn 10. nóvember kl. 17 - 18:30
Hvernig getur manneskja með lítinn sjálfsaga breytt mataræði sínu úr ruslmat í vítamínríkt fæði? Hvernig getur lélegur kokkur búið til gómsæta heilsurétti? Hvaða eiturefni erum við að innbyrða daglega í svokölluðum „hollustu“ mat? Þetta og margt fleira ber á góma í fyrirlestri Eddu og nokkur góð ráð fylgja fyrir þá sem vilja lifa heilbrigðara lífi – en nenna því ekki! Fyrirlesturinn er fyrst og fremst spaugileg lýsing á eigin reynslu í því að gerast hollustu-æta. Edda rekur söguna frá því hún byrjaði í makróbíótísku baununum og þangað til núna og svo er hún með hryllingssögur frá dr. Gillian, Kevin Trudau og Huldu Clark.
Félagar í SFR skrái sig á vef félagsins http://www.sfr.is/fraedsla/namskeid/nr/219/