Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Gunnlaugs saga ormstungu og Heiðarvígasaga - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Magnús Jónsson
Verð kr: 20.900 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður
Námskeið hefst: 03/02/2009 - Umsóknarfrestur til: 31/01/2009
Fjöldi kennslustunda: 21
Ath: Kennt á þriðjud. kl. 20:15-22:00. Hefst þriðjud. 3. febrúar (8 skipti). Mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Námskeið kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ)

Að þessu sinni mun Magnús Jónsson fjalla um tvær magnaðar Íslendingasögur, Gunnlaugs sögu Ormstungu og Heiðarvígasögu.

Gunnlaugs saga ormstungu er meðal allra vinsælustu og þekktustu Íslendingasagna enda áhrifamikið listaverk um ástir og ógæfu. Sagan fjallar um Gunnlaug ormstungu og Skáld-Hrafn sem berjast um ástir Helgu hinnar fögru. Örlög þeirra eru falin í draumi Þorsteins á Borg, föður Helgu. Í draumnum birtast keppinautarnir sem ernir er berjast um fagra álft, fella hvor annan en álftin situr eftir hnípin og döpur.

Heiðarvíga saga hefur löngum verið talin meðal elstu Íslendingasagna. Hún segir frá langvarandi deilum og þótt upphafið, ómarkað hrútshöfuð, sé lítilfjörlegt magnast atburðarásin og hefndarskylda sæmdarinnar heldur stöðugt áfram. Frásögnin er áhrifamikil, lifandi og skemmtileg og víða tekst sögumanni snilldarvel upp.

Í báðum sögunum segir frá afkomendum Egils Skallagrímssonar, sögusviðið er einkum Borgarfjörður, Snæfellsnes og Húnaþing en frásögnin teygir anga sína til Norðurlanda, Bretlandseyja og allt austur í Miklagarð.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is