Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Hjarta- og æðasjúkdómar - námsstefna í gegnum fjarfundabúnað frá EHÍ.

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Ýmsir sérfræðingar munu halda fyrirlestra
Verð kr: 19.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 26/03/2009 - Umsóknarfrestur til: 24/03/2009
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Námsstefnan verður haldin fimmtudaginn 26. mars kl. 9:00-16:00. Mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Námsstefnan er í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) og haldið í samstarfi við Félag lífeindafræðinga.

Einkum ætlað fagfólki á heilbrigðissviði.

Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök á Íslandi og þar af er hæst hlutfall kransæðasjúkdóma. Þekking á eðli kransæðastíflu og ný meðferðarúrræði hafa leitt til lengra lífs og bættrar heilsu kransæðasjúklinga. Á námsstefnunni verður fjallað um hjartað - bæði heilbrigt og sjúkt - með aðaláherslu á kransæðasjúkdóma. Fjallað verður um rannsóknir til greininga hjartasjúkdóma og meðferðarúrræði fyrir kransæðasjúklinga. Jafnframt verður rætt um algengi hjartasjúkdóma á Íslandi svo og saga kransæðasjúkdóma kynnt.

Umsjón: Hanna S. Ásvaldsdóttir, Ms. lífeindafræðingur og Alda M. Hauksdóttir, Bs. lífeindafræðingur. Ýmsir sérfræðingar munu halda fyrirlestra á námsstefnuninni. 

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is