Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Höfundur Njálu - fjarnámskeið frá EHÍ.

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Einar Kárason
Verð kr: 8.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 12/10/2009 - Umsóknarfrestur til: 09/10/2009
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt mán. 12. og 19. okt. kl. 20:15-22:15 (2 skipti)

Á þessu tveggja kvölda námskeiði verður farið yfir helstu kenningar sem fram hafa komið um uppruna Njálu, og umræður sem orðið hafa um hinn óþekkta höfund bókarinnar, frægasta fornrits okkar Íslendinga. Leitin verður þrengd og skoðað og rætt hvernig nálgast megi svar við gátunni, hvernig þekking nútímafólks á tilurð bókmenntaverka getur leitt okkur á skynsamlegar slóðir. Gestir verða fengnir til að viðra sínar kenningar og gert er ráð fyrir umræðum og skoðanaskiptum meðal allra sem námskeiðið sitja. Þetta námskeið er ætlað öllum unnendum Njálssögu og íslenskra fornbókmennta.

Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun HÍ.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is