Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Hvernig meðhöndla skal lambaskrokk - á Reykhólum

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Guðmundur Helgi Helgason matreiðslumeistari
Verð kr: 11.900- -
Staður: Barmahlíð á Reykhólum
Námskeið hefst: 17/11/2010 - Umsóknarfrestur til: 17/11/2010
Fjöldi kennslustunda: 5
Ath: Aðeins 6 þátttakendur í einu. Lambaskrokkur ekki innifalinn í verði (þátttakendur koma með hann sjálfir). Hefst kl. 18.

Námskeiðið gengur út á að kenna fólki að ganga frá lambaskrokk í frystikistuna. Þ.e. hvernig skal úrbeina og saga kjötið. Þá verður útskýrt hvernig á að gera bæði kæfu og rúllupylsu, gefnar ráðleggingar um eldun allra bita skrokksins og uppskriftahefti fylgir með.
3 - 4 klukkustundir. Hefst kl. 18.
Ath. Námskeiðið átti að vera þriðjudaginn 2. nóvember en féll þá niður vegna veðurs og var frestað til miðvikudagsins 17. nóvember n.k.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is