Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Íþróttasálfræði - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur
Verð kr: 15.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12
Námskeið hefst: 23/02/2009 - Umsóknarfrestur til: 23/02/2009
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt mánud. 23. feb. kl. 13:00 - 16:00 og þriðjud. 24. feb. kl. 9:00 - 12:00 (2 skipti). Mikilvægt að skrá sig tímanleglega

Námskeið kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ). Í samvinnu við geðsvið Landspítalans.

Á námskeiðinu, sem ætlað er íþróttafræðingum, sálfræðingum, þjálfurum og öðrum áhugasömum, verður farið yfir helsu grunnatriði íþróttasálfræðinnar. Fjallað verður um kenningar í íþróttasálfræði og hvernig þeir sem starfa með íþróttamönnum geta nýtt þær kenningar til að bæta árangur íþróttamanna.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á eftirfarandi atriði: - Hugarþjálfun og skynmyndir. Hvað er hugarþjálfun og skynmyndir? Er hægt að bæta árangur í íþróttum með hugarþjálfun og skynmyndum? Hvernig fer hugarþjálfun fram? - Einbeiting í íþróttum. Hvað er einbeiting og hvernig skiptir hún máli í íþróttum? Hvað truflar einbeitingu? Hvernig er hægt að auka einbeitingu? - Markmiðssetning íþróttamanna. Hversu miklu máli skiptir markmiðssetning? Skiptir máli hvernig markmið eru sett? - Sjálfstraust. Hvað er sjálfstraust? Hvaða áhrif hefur sjálfstraust í íþróttum? Er hægt að hafa of mikið sjálfstraust í íþróttum? Hvernig er hægt að auka sjálfstraust hjá íþróttamönnum? - Kvíði og spennustig. Hvað er kvíði og spenna? Hvaða áhrif hefur kvíði og spenna á frammistöðu? Hvað hefur áhrif á spennustig íþróttamanna? Hvernig er hægt að stjórna spennustigi? - Endurgjöf. Hvað er endurgjöf? Hvaða máli skiptir endurgjöf í íþróttum? Skiptir máli hvernig endurgjöfin er? Endurgjöf og árangur. - Samstaða í íþróttum. Hvað er samstaða? Hvaða máli skiptir samstaða í íþróttum? Hvernig er hægt að auka samstöðu í hópum?

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is