Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Þjóðfræði og Strandir - Hólmavík, fjarkennt um Vestfirði

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu.
Verð kr: 7.900 -
Staður: Hólmavík, fjarkennt á aðra staði á Vestfjörðum.
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt í febrúar 2011.

Fjallað verður um íslenska þjóðfræði fyrr og nú með áherslu á Strandir. Greint verður frá hugtakinu og fræðigreininni þjóðfræði. Þá verður sagt frá þeirri þjóðtrú sem greina má í íslenskum heimildum allt frá fornritum og þjóðsagnasöfnum til fjölmiðla nútímans. Skoðaðar verða ýmsar sagnir af huldufólki, tröllum, galdramönnum og draugum og tekin dæmi af Ströndum. Tæpt verður á náttúrufari og svæðisbundnum einkennum. Þá verða ýmsar birtingarmyndir þjóðfræði og þjóðtrúar nútímans skoðaðar og leitað í sagnasjóði nemenda.

Námskeiðið verður fjarkennt frá Hólmavík á þá staði þar sem Fræðslumiðstöðin hefur aðgang að fjarfundabúnaði.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is