Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Þjónusta - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Margrét Reynisdóttir frá KAXMA-ráðgjöf ehf. MSc og höfundur kennslubókar um þjónustu.
Verð kr: 6.000 -
Staður: Café Riis
Námskeið hefst: 12/04/2008 - Umsóknarfrestur til: 12/04/2008
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt laugardaginn 12. apríl.


Námskeið fyrir nemendur Grunnmenntaskólans og aðra áhugasama.

Námsmarkmið eru að þátttakendur;
· þekki tengslin milli sjálfstrausts, samskipta og þjónustu.
· þekki undirstöðuatriði í þjónustu við viðskiptavini.
· þekki undirstöðuatriði þjónustu innan fyrirtækis.

Námslýsing:
Megináhersla er lögð á hvernig góð þjónusta byggir á góðu sjálfstrausti og samskiptum.
Mikilvæg atriði í þjónustu við viðskiptavini. Hvernig á að taka á erfiðum viðskiptavinum og taka á móti kvörtunum? Þjónusta inn á við, þegar ein deild þjónustar aðra, flöskuhálsar og upplýsingaflæði. Samskipti við vinnufélaga.

Þátttakendur fá afhenta kennslubók um þjónustu.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is