|
||||
|
|
Námskeið frá Framvegis - ætlað sjúkraliðum en öllum opið sem áhuga hafa á bættri þjónustu.
Markmið með námskeiðinu er að þátttakendur þekki mikilvæg atriði í þjónustu og samskiptum við óánægða viðskiptavini.
Á námskeiðinu eru tekin fyrir fjölmörg atriði þar sem sýnt er hvernig hægt er gera góða þjónustu betri, jafnvel framúrskarandi og hvað ber að varast. Megináhersla er lögð á hvernig góð þjónusta byggir á sjálfstrausti og góðum samskiptum. Greint er frá mikilvægum atriðum í þjónustu. Hvernig á að taka á “erfiðum” viðskiptavinum og hvernig hægt er að snúa kvörtunum upp í tækifæri til jákvæðra úrbóta.
Námskeiðið er 10 klukkustundir, sem samsvara 15 kennslustundum. Þar af fer helmingur kennslunnar fram í gegnum internetið.